Trollið er þróað af Selstad AS í Noregi og hefur reynslan af því verið mjög góð. Helstu einkenni þessa nýja trolls felast í breyttri hönnun á framhluta og belg trollsins, ásamt breyttri efnisnotkun. Hönnunin miðar að betri opnun bæði lóðrétt og lágrétt, góðri sjótæmingu og sjóflæði í belg og lítilli ánetjun. Trollið er einfalt að allri gerð og öll vinna við það því auðveld fyrir áhafnir fiskiskipa. Á trollið eru notaðar 9,5 tommu trollkúlur sem eru hannaðar fyrir straum.
Trollin er sérsniðin þörfum hvers og eins, nánari upplýsingar um botntroll hjá sölumönnum.