Ísfell er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2019 samkvæmt greiningu Creditinfo. Ísfell er því meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum 2019.
Eingöngu koma til greina þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo sem fram kemur á heimasíðu Creditinfo.
Gaman er að segja frá því að þetta er annað árið í röð sem Ísfell hlýtur þennan titil og erum við afar stolt af því.